Fotbolti.net
26.01.12 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Nedum Onuoha til QPR (Staðfest)

Nedum Onuoha til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur keypt varnarmanninn Nedum Onuoha frá Manchester City en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Onuoha var í láni hjá Sunderland á síðasta tímabili en hann hefur ekki verið inni í myndinni hjá City í vetur.

Þessi 25 ára gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við QPR í dag en hjá félaginu hittir hann fyrir Mark Hughes fyrrum stjóra sinn hjá Manchester City.

,,Nedum er leikmaður sem ég þekki mjög vel,\" sagði Hughes eftir að gengið var frá samningum.

,,Hann er mjög fjölhæfur. Hann getur spilað sem miðvörður eða hægri bakvörður og er með góðan hraða. Hann er mjög góð viðbót við hópinn.\"

Heimild: Heimasíða QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.