Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 26. janúar 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Lyon ætlar að sækja Lamptey í stað Gusto
Mynd: Getty Images
Franska félagið Lyon hefur áhuga á því að fá Tariq Lamptey, leikmann Brighton, í þessum glugga. Þetta segir Fabrizio Romano í dag.

Chelsea er í viðræðum við Lyon um kaup á brasilíska hægri bakverðinum Malo Gusto en þau félagaskipti gætu gengið í gegn á næstu dögum.

Franska félagið er því í leit að hægri bakverði og er Lamptey efstur á blaði.

Lamptey er 22 ára gamall en hann hefur verið í aukahlutverki hjá Brighton á þessari leiktíð og er enska félagið opið fyrir því að selja hann í glugganum.

Sporting Lisbon hefur einnig áhuga á Lamptey og mun fara í viðræður við Brighton á næstu dögum en félagið vill fá hann á láni í stað Pedro Porro sem er á leið til Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner