Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 26. mars 2023 11:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rangnick: Sabitzer er með miklu meira sjálfstraust
Mynd: Manchester United

Marcel Sabitzer miðjumaður Manchester United hefur staðið sig gríðarlega vel hjá liðinu eftir að hann færði sig yfir til Englands frá Bayern Munchen á láni.


Þessi austurríski landsliðsmaður átti stórleik í gær þegar Austurríki vann Aserbaíjan 3-0. Ralf Rangnick fyrrum stjóri Manchester United stýrir austurríska landsliðinu í dag.

„Hann var stórkostlegur, það er ekki hægt að segja annað. Hann er með rosaleg gæði," sagði Ralf Rangnick.

„Hann er með miklu meira sjálfstraust en hjá Bayern. Enginn stóð upp úr í þessum leik en auðvitað geturu sagt að Sabitzer hafi gert gæfumuninn þar sem hann skoraði tvö og lagði upp eitt."


Athugasemdir
banner
banner
banner