Fotbolti.net
26.06.23 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stuðningsmenn PSG vilja ekki sjá Lucas - „Ert ekki velkominn"

Lucas Hernandez setti höfuðið ofan í Meistaradeildarbikarinn.

Lucas Hernandez setti höfuðið ofan í Meistaradeildarbikarinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Lucas Hernandez, varnarmaður Bayern, er sterklega orðaður við PSG þessa dagana. Frakkinn vill halda til heimalandsins og er PSG sagt tilbúið að greiða þýsku meisturunum 34 milljónir punda fyrir landsliðsmanninn.

Harðkjarna stuðningsmenn PSG, Ultras, eru ekki spenntir fyrir komu Hernandez. Þeir hafa komið sér í fréttirnar síðustu mánuði eftir að hafa látið bæði Neymar og Lionel Messi finna fyrir því.
Hernandez er tengdur Marseille og það eru erkióvinir PSG. Hann er fæddur í Marseille og er sonur fyrrum leikmanns félagsins.

Einn af aðalmönnunum í harðkjarna stuðningsmannasveit PSG sagði á Instagram að Hernandez „væri ekki velkominn" og „hann yrði látinn vita" að svo væri ef hann kæmi.

Stuðningsmenn muna eftir því þegar Hernandez nuddaði þeim upp úr tapinu gegn Bayern í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2020. Varnarmaðurinn vildi þó meina að það hefði ekki verið neitt illt í fögnuðinum á sínum tíma.

Hernandez vill nýja áskorun á sínum ferli. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Bayern og ætlar sér ekki að framlengja við þýsku meistarana.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.