Fotbolti.net
26.09.11 - 17:45
Magnús Már Einarsson

Björn Helge Riise til Portsmouth á láni (Staðfest)

Björn Helge Riise til Portsmouth á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur fengið norska miðjumanninn Björn Helge Riise á láni frá Fulham.

Lánssamningurinn gildir þar til í landsleikjahléinu í nóvember eða í tæpa tvo mánuði.

Hinn 28 ára gamli Riise hefur ekki verið inni í myndinni hjá Fulham að undanförnu og hann fær nú tækifæri til að láta ljós sitt skína með Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Portsmouth.
Riise mun hoppa beint inn í leikmannahóp Portsmouth fyrir leikinn gegn Peterborough annað kvöld.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.