Aaron Ramsdale var magnaður í 3-1 sigri Arsenal á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag en hann þurfti að taka á stóra sínum undir lok leiksins.
Arsenal var 3-1 yfir þegar Lucas Moura var með boltann fyrir utan teig. Hann lét vaða rétt fyrir utan og virtist boltinn vera að sigla yfir Ramsdale og í netið.
Enski markvörðurinn náði á einhvern ótrúlegan hátt að ná örlítilli snertingu sem varð til þess að boltinn fór í slá áður en leikmenn Arsenal hreinsuðu boltann frá.
Hægt er að sjá þessa vörslu hér fyrir neðan.
Aron Ramsdale ✈️👀pic.twitter.com/Xa8MHplA4f
— 𝖥𝖠𝖲𝖳 𝖦𝖮𝖠𝖫𝖲 (@IFAST66) September 26, 2021
Athugasemdir