Fotbolti.net
26.10.11 - 12:30
Fótbolti.net

Slúðurpakki úr íslenska boltanum - Númer fjögur

Albert Brynjar er meðal annars orðaður við Íslands og bikarmeistara KR.

Albert Brynjar er meðal annars orðaður við Íslands og bikarmeistara KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Þá er komið að öðrum slúðurpakkanum úr íslenska boltanum í haust. Í slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.
Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].

Sjá einnig:
Íslenskur slúðurpakki - Númer þrjú (18.október)
Íslenskur slúðurpakki - Númer tvö (10.október)
Íslenskur slúðurpakki (3.október)


KR: Guðjón Baldvinsson er á förum út. Í Vesturbænum er mikill áhugi á Alberti Brynjari Ingasyni framherja Fylkis en hann gæti fyllt skarð Guðjóns. Elfar Árni Aðalsteinsson framherji Völsungs er einnig undir smásjánni en hann mun æfa með KR-ingum í næsta mánuði. Þá vonast KR-ingar til að fá Kristinn Steindórsson ef hann finnur sér ekki lið erlendis.

FH: Fimleikafélagið hefur rætt við Guðmund Steinarsson leikmann Keflavíkur. Þorsteinn Már Ragnarsson leikmaður Víkings frá Ólafsvík er einnig undir smásjánni.

ÍBV: Eyjamenn vilja fá varnarjaxlinn Tryggva Svein Bjarnason aftur í sínar raðir frá Stjörnunni. Árni Freyr Guðnason, leikmaður ÍR, mun líklega velja ÍBV fram yfir Fylki. Eyjamenn hafa áhuga á Fjalari Þorgeirssyni sem er á förum frá Fylki og þá hefur ÍBV einnig rætt við Guðjón Árna Antoníusson leikmann Keflavíkur. Björgólfur Takefusa er einnig á óskalista Eyjamanna.

Stjarnan: Kantmaðurinn Gunnar Örn Jónsson er sterklega orðaður við Stjörnunna en ljóst er að hann mun ekki spila áfram með KR á næsta tímabili. Ólafur Örn Bjarnason varnarmaður Grindvíkinga er orðaður við Stjörnuna en hann gæti fyllt skarð Tryggva Sveins Bjarnasonar ef hann fer til ÍBV.

Valur: Guðjón Pétur Lýðsson verður líklega áfram hjá Val en lánssamningur hans hjá sænsku meisturunum í Helsingborg rennur út síðar á árinu. Albert Brynjar Ingason er efstur á óskalista Valsmanna sem hafa einnig áhuga á að klófesta Þorstein Má Ragnarsson framherja Víkings frá Ólafsvík. Guðmundur Steinarsson hefur einnig átt í viðræðum við Val eins og fleiri félög.

Breiðablik: Framherjarnir Björgolfur Takefusa, Tomi Ameobi og Albert Brynjar Ingason eru sagðir vera á óskalista Blika. Guðmann Þórisson, varnarmaður Nybergsund, gæti verið á heimleið og þá mögulega í Breiðablik.

Fylkir: Búið er að bjóða Alberti Brynjari Ingasyni nýjan samning og hann ætlar að velja Fylki fram yfir önnur félög ef hann fær viðunandi samning. Tómas Leifsson er orðaður við Fylki en hann lék undir stjórn Ásmundar Arnarssonar hjá Fjölni á sínum tíma. Illugi Þór Gunnarsson leikmaður Fjölnis hefur áhuga a að fara í Fylki en Ásmundur ætlar ekki að taka leikmenn með sér úr Grafarvoginum. Fylkismenn hafa einnig rætt við Guðjón Árna Antoníusson líkt og fleiri félög. Björgólfur Takefusa framherji Víkings, Gunnar Örn Jónsson og Jón Gísli Ström kantmaður ÍR eru orðaðir við Fylkismenn. Valur Fannar Gíslason er samningslaus og óljóst er hvort að hann verði áfram.

Keflavík: Afar rólegt er hjá Keflvíkingum þessa dagana. Líklegt er að Guðmundur Steinarsson verði áfram þrátt fyrir áhuga hjá nokkrum félögum.

Fram: Illugi Þór Gunnarsson leikmaður Fjölnis er á óskalista Fram. Sindri Snær Magnússon, ungur miðjumaður úr ÍR, er einnig orðaður við félagið. Framarar vilja halda Arnari Gunnlaugssyni sem spilandi aðstoðarþjálfara en fleiri félög hafa áhuga á honum.

Grindavík: Guðjón Þórðarson mun taka við Grindavík og þegar eru farnar af stað sögur um leikmenn sem gætu komið til félagsins. Jóhannes Karl sonur hans hefur verið nefndur til sögunnar en hann er á leið heim úr atvinnumennsku. Atli Guðjónsson gæti einnig fylgt föður sínum frá BÍ/Bolungarvík og Tomi Ameobi, Colin Marshall og Nicky Deverdics eru einnig orðaðir við félagið. Nokkur félög vilja fá Jósef Kristinn Jósefsson en hann ætlar að bíða með að taka ákvörðun.

ÍA: Skagamenn eru í leit að framherja og hinn eftirsótti Þorsteinn Már Ragnarsson er á óskalista þeirra. Stefán Örn Arnarson gæti einnig leikið með Skagamönnum næsta sumar eftir að hafa verið í fríi frá fótbolta í sumar. Skagamenn vilja einnig gera nýjan samning við Gary Martin.

Selfoss: Gunnar Örn Jónsson er orðaður við Selfyssinga sem og Ásgeir Börkur Ásgeirsson miðjumaður Fylkis en hann lék fyrir austan fjall 2007 og 2008. Kantmaðurinn ungi Jón Gísli Ström er einnig orðaður við Selfyssinga.

Þór: Þorsteinn Ingason fyrirliði Þórs gæti verið á förum og félagið ætlar að finna varnarmann til að fylla hans skarð. Andri Hjörvar Albertsson fyrirliði Fjarðabyggðar kemur þar til greina en hann er fyrrum Þórsari. Þór ætlar einnig að skoða Ibra Jagne framherja Magna en hann þekkir vel til hjá Þórsurum. Atli Sigurjónsson og Gísli Páll Helgason eru á förum.

Víkingur R.: Varnarmaðurinn reyndi Reynir Leósson er á leið til Víkings en ljóst er að hann verður ekki áfram í herbúðum í ÍA.

Haukar: Ólafur Jóhannesson nýráðinn þjálfari Hauka gæti fengið Guðmund Sævarsson hægri bakvörð FH í sínar raðir.

Fjölnir: Arnar og Bjarki Gunnlaugssyni eru á óskalista Fjölnis sem og Scott Ramsey, miðjumaður Grindavík. Gunnar Sigurðsson gæti verið á leið til Fjölnis sem spilandi markmannsþjálfari, Andri Júlíusson leikmaður Fram er á óskalistanum og þá vill liðið skoða Kristinn Þór Björnsson vinstri kantmann Dalvíkur/Reynis.

Víkingur Ó.: Óvíst er hvort varnarmaðurinn Artjoms Goncars verði áfram hjá Víkingi Ólafsvík en félög í Pepsi-deildinni hafa áhuga á honum.

BÍ/Bolungarvík: Ennþá er óljóst hver mun þjálfa skástrikið á næsta tímabili. Tómas Ingi Tómasson, Úlfar Hinriksson hjá Breiðabliki og Magni Fannberg yngri flokka þjálfari í Svíþjóð eru orðaðir við félagið. Vilhjálmur Vilhjálmsson, besti leikmaður Hamars í sumar, hefur verið orðaður við BÍ/Bolungarvík.

KA: Bjarki Baldvinsson, leikmaður Völsungs, er sennilega á leið til KA. Hjörtur Júlíus Hjartarson er einnig orðaður við KA eins og fleiri félög. Jóhann Helgason miðjumaður Grindavíku er áfram orðaður við KA sem hefur einnig áhuga á Kristni Björnssyni leikmanni Dalvíkur/Reynis.

Þróttur: Hjálmar Þórarinsson, framherji Fram, er orðaður við sína gömlu félaga í Þrótt sem og markvörðurinn Fjalar Þorgeirsson.

ÍR: Miklar breytingar gætu orðið hjá ÍR-ingum en margir leikmenn liðsins eru að líta í kringum sig. ÍR-ingar hafa rætt við Fjalar Þorgeirsson markvörð Fylkis.

Leiknir R.: Damir Muminovic leikmaður HK og Arnór Þrastarson framherji Aftureldingar eru orðaðir við Leikni.

HK: Ásgrímur Albertsson og Davíð Magnússon munu líklega leggja skóna á hilluna. Ásgeir Aron Ásgeirsson er á förum og þeir Atli Valsson, Leifur Andri Leifsson og Ögmundur Ólafsson eru að líta í kringum sig.

Dalvík/Reynir: Ibra Jagne framherji Magna er á óskalista Dalvíkur/Reynis. Hermann Albertsson, fyrirliði liðsins, verður áfram hjá Dalvík/Reyni en Kristinn Þór Björnsson, markahæsti maður liðsins, gæti verið á leið frá félaginu í efri deildir.

KF: Menn í Fjallabyggð vilja skoða stöðuna á Ibra Jagne. KF vill einnig semja við miðjumanninn Trausta Örn Þórðarsson sem var á láni frá Þór í sumar.

Völsungur: Bjarki Baldvinsson og markahrókurinn Elfar Árni Aðalsteinsson eru á förumfrá Völsungi og þá gæti Hrannar Björn Steingrímsson einnig farið frá félaginu. Völsungur vill semja við varnarmanninn Hauk Hinriksson, leikmann ársins síðasta sumar, en hann var á láni frá KA.

KV: Tómas Agnarsson varnarmaður ÍR er orðaður við KV sem komst upp í aðra deildina í sumar. Vesturbæjarliðið vill einnig fá Magnús Bernhard Gíslason og Steindór Odd Ellertsson aftur í sínar raðir frá Gróttu.
Gunnar Örn er orðaður við Stjörnuna, Fylki og Selfoss.

Gunnar Örn er orðaður við Stjörnuna, Fylki og Selfoss.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Reynir Leósson er á leið í Víking.

Reynir Leósson er á leið í Víking.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Ibra Jagne er eftirsóttur hjá félögum á Norðurlandi.

Ibra Jagne er eftirsóttur hjá félögum á Norðurlandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.