Fotbolti.net
26.10.11 - 14:38
Magnús Már Einarsson

Kristján Finnbogason í Fylki (Staðfest)

Kristján Finnbogason í Fylki (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kristján Finnbogason hefur gert tveggja ára samning við Fylki um að sjá um markmannsþjálfun hjá meistara og öðrum flokki félagsins.
Þessi fertugi markvörður ákvað að leggja skóna á hilluna í haust eftir að hafa leikið með Gróttu undanfarin ár. Kristján verður þó einnig til taks ef á þarf að halda hjá Fylki næsta sumar.

Bjarni Þórður Halldórsson verður aðalmarkvörður Fylkis á næsta tímabili eftir að Fjalar Þorgeirsson yfirgaf félagið í vikunni.

,,Það eru líka tveir efnilegir markverðir í öðrum flokki og þeir verða þrír þarna,\" sagði Kristján við Fótbolta.net í dag.

,,Ég verð síðan til taks ef svo ólíklega skyldi vilja til að þeir þurfi að nota mig en þetta er markmannsþjáfun númer 1, 2 og 3.\"

Kristján er gífurlega reynslumikill en hann lék með KR um áraraðir auk þess sem hann var á mála hjá ÍA á sínum tíma.

Á ferli sínum hefur Kristján leikið 265 leiki í efstu deild og þá á hann að baki 20 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.

Hann hefur orðið sex sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum orðið bikarmeistari með þeim félögum sem hann hefur leikið með.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.