Fotbolti.net
26.10.11 - 21:28
Alexander Freyr Tamimi

Jens Elvar tekur við Reyni Sandgerði (Staðfest)

Jens Elvar í leik með Þrótti í sumar.

Jens Elvar í leik með Þrótti í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Í dag var formlega gengið frá ráðningu Jens Elvars Sævarssonar sem spilandi þjálfara Reynis Sandgerði, en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Jens kemur til liðsins frá Þrótti Reykjavík þar sem hann spilaði á síðustu leiktíð.
Eftir undirskriftina tilkynnti Jens Elvar að Magni Jóhannsson verður honum til aðstoðar sem spilandi aðstoðarþjálfari. Magni hefur leikið með liði Reynis í tæp sjö ár, en hann var í fyrra markahæsti leikmaður 2. deildar og var kosinn í lið ársins á Fótbolta.net.

,,Ég er mjög spenntur fyrir því að hefja störf hjá Reyni. Mér líst vel á áætlanir stjórnarinnar og það litla sem ég veit um hópinn. Þetta er spennandi verkefni og ég er bara æstur í að byrja,\" sagði Jens eftir undirskriftina.

,,Ég kannast aðeins við þessa menn og hef spilað á móti þeim allmörgum sinnum þegar ég starfaði hjá Hvöt. Ég þekki líka nöfnin þeirra en kannski ekki alveg getu þeirra allra. Ég hef hringt í menn úti í bæ, spurst fyrir um þá sem ég þekki minna til og fengið ekkert nema góð svör. Allir sem ég hef heyrt í tala vel um allt hérna, leikmennina, aðstæður og hvernig haldið er utan um klúbbinn.“

Heimild: Reynir S

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.