Fotbolti.net
26.10.11 - 22:43
Alexander Freyr Tamimi

Björgólfur Takefusa í Fylki (Staðfest)

Björgólfur Takefusa er farinn til Fylkis á láni.

Björgólfur Takefusa er farinn til Fylkis á láni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Björgólfur Takefusa er genginn til liðs við Fylki á eins árs lánssamningi frá Víkingi, en þetta fékk Fótbolti.net staðfest hjá félaginu rétt í þessu.
Björgólfur skoraði sjö mörk í 14 leikjum fyrir Víking á síðasta tímabili, en hann var meiddur framan af tímabili vegna meiðsla.

Hann hafði ekki farið leynt með áhuga sinn á því að spila í efstu deild, en sagðist jafnframt vera tilbúinn að spila með Víkingi að ári ef þeir kæmust aftur upp í deild þeirra bestu.

,,Við erum að leitast eftir því að fylla aðeins inn í hópinn og Björgólfur er náttúrulega frábær sóknarmaður sem skorar alltaf sín mörk. Þess vegna vorum við spenntir fyrir því og höfðum verið að skoða undanfarið hvort að þetta gæti gengið upp,\" sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis þegar Fótbolti.net heyrði í honum.

,,Við erum spenntir fyrir því að fá hann til okkar og hann virtist spenntur fyrir því að spila fyrir Fylki, og spenntur fyrir því að gera vel á næsta ári í efstu deild. Vonandi getur það \"combination\" virkað vel fyrir báða aðila.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.