Fotbolti.net
26.11.11 - 17:34
Hafliði Breiðfjörð

Elfar Árni Aðalsteinsson í Breiðablik (Staðfest)

Elfar Árni og Einar Kristján Jónsson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks við undirskriftina í dag.

Elfar Árni og Einar Kristján Jónsson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks við undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Breiðablik

Breiðablik staðfesti rétt í þessu að Elfar Árni Aðalsteinsson sé genginn í raðir félagsins frá Völsungi en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Elfar Árni hefur verið að skoða sig um á höfuðborgarsvæðinu og ætlaði sér í Pepsi-deildina. Hann æfði þannig með Breiðablik og KR og ræddi einnig við Fylki auk þess sem fleiri félög sýndu honum áhuga

Elfar Árni skoraði þrettán mörk í 22 leikjum í annarri deildinni í sumar en hann lék bæði frammi hjá Völsungi sem og framarlega á miðjunni.

Samtals hefur Elfar Árni skorað 39 mörk með Völsungi síðan hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2006.

Elfar Árni verður annar leikmaðurinn sem Breiðablik fær í sínar raðir í vikunni en Viggó Kristjánsson kom einnig til félagsins frá Gróttu.

Hann er bróðir Baldurs Ingimars Aðalsteinssonar sem hefur leikið með ÍA, Val og Víkingi undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.