Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   lau 27. apríl 2024 11:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Edmilson á Egilsstaði (Staðfest) - Hjörvar snýr aftur
Mynd: Höttur/Huginn

Edmilson Viegas samdi við Hött/Huginn á lokadegi félagsskiptagluggans og spilar með liðinu í 2. deild í sumar.


Edmilson er 27 ára gamall og getur leyst allar fremstu stöðurnar á vellinum. Hann lék síðast með portúgalska liðinu G.D. Estoril Praia.

Hann hefur þegar spilað sinn fyrsta leik fyrir Hött en hann kom inn á sem varamaður undir lokin í 1-0 tapi liðsins gegn Fylki í Mjólkurbikarnum á dögunum.

Þá samdi Hjörvar Sigurgeirsson aftur við félagið en hann kom til liðsins frá Aftureldingu. Hann samdi við Mosfellsbæjarliðið fyrir síðustu leiktíð en hann spilaði með Hetti/Huginn sumarið 2022.


Athugasemdir
banner
banner
banner