Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   lau 27. apríl 2024 14:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp: Er ekki í stuði til að tala um það
Mynd: Getty Images

Liverpool gerði jafntefli gegn West Ham í Lundúnum í dag og er möguleikinn á Englandsmeistaratitli á síðasta tímabili Jurgen Klopp orðinn ansi lítill.


Liverpool er sem stendur í 3. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Arsenal og stigi á eftir Man City en Arsenal á leik til góða á meðan City á tvo leiki til góða á Liverpool.

Klopp vildi ekki ræða titilbaráttuna við TNT Sports.

„Ég er ekki í stuði til að tala um það eða skoða það almennt. Við þurftum að vinna hérna, við vissum það en við gerðum það ekki. Núna er aðeins meiri tími milli leikja og við reynum að gera leikmennina tilbúna og reyna aftur," sagði Klopp.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner