27.05.10 - 19:14
Ívan Guðjón Baldursson
Domenico Di Carlo tekur við Sampdoria (Staðfest)

Domenico Di Carlo.

Mynd: Getty Images

Domenico Di Carlo.

Mynd: Getty Images
Sampdoria átti sitt besta tímabil í mörg ár þegar það náði Meistaradeildarsæti undir stjórn Luigi Del Neri. Skömmu eftir það var Del Neri ráðinn af Juventus í stað Alberto Zaccheroni svo að Sampdoria þurfti að finna þjálfara í stað hans.
Nú hefur Sampdoria fundið þjálfara til að fylla skarð Del Neri en það er Domenico Di Carlo.
,,Sampdoria tilkynnir að félagið hefur skrifað undir tveggja ára samning við Herra Domenico Di Carlo sem yfirþjálfara aðalliðsins,\" sagði á vefsíðu Sampdoria.
Domenico Di Carlo hefur þjálfað Chievo síðastliðin tvö ár og gert góða hluti þar.
,,Þetta var tilboð sem ég gat ekki hafnað,\" sagði Di Carlo við vefsíðu félagsins.
,,Ég geri mér grein fyrir að ég þarf að fylla í stórt skarð, en það hræðir mig ekki.\"
,,Sum tækifæri berast sjaldan og þú verður að grípa þau. Ég vildi vera áfram hjá Chievo en þegar mér var boðið tækifæri að spila í undankeppni Meistaradeildarinnar gat ég ekki neitað.\"

Heimild: Goal