27.05.10 - 14:34
Magnús Már Einarsson
Kasper Schmeichel til Leeds (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leeds United hefur gert tveggja ára samning við danska markvörðinn Kasper Schmeichel.
Þessi 23 ára gamli leikmaður kemur frítt til Leeds en hann fékk að fara frá Notts County á dögunum þar sem félagið hafði ekki efni á að halda honum lengur.
Kasper, sem er sonur Peter Schmeichel, var áður á mála hjá Manchester City en hann hjálpaði Notts County að komast upp úr fjórðu efstu deild á Englandi á nýliðnu tímabili.
Hjá Leeds fær Kasper það hlutverk að fylla skarð Casper Ankergren sem var látinn fara á dögunum.
Leeds leikur í Championship deildinni á næsta tímabili en liðið komst upp um deild í vor.

Heimild: Sky