Franski framherjinn Olivier Giroud er búinn að yfirgefa Los Angeles FC eftir að liðið féll úr leik í riðlakeppni HM félagsliða. Hann spilar kveðjuleik sinn á sunnudagsnóttina þegar Los Angeles mætir mætir Vancouver Whitecaps í MLS deildinni.
Giroud, sem verður 39 ára í september, er að halda aftur heim til Frakklands þar sem hann verður liðsfélagi Hákons Arnars Haraldssonar hjá Lille.
Lille endaði í fimmta sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð og missti naumlega af sæti í Meistaradeild Evrópu. Liðið leikur í staðinn í Evrópudeildinni og fær Giroud því tækifæri til að bæta við sig mörkum í keppninni.
Giroud gekk til liðs við Los Angeles í fyrrasumar á frjálsri sölu eftir að hafa runnið út á samningi hjá AC Milan.
Giroud er goðsögn hjá franska landsliðinu þar sem hann skoraði 57 mörk í 137 landsleikjum og varð heimsmeistari með liðinu auk þess að hreppa silfurverðlaun á HM og EM. Hann lék meðal annars fyrir Arsenal og Chelsea á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta.
Hann skoraði 5 mörk í 37 leikjum með Los Angeles en markaskorun hefur aldrei verið hans sterkasta hlið. Giroud er sérstaklega öflugur þegar kemur að því að byggja upp sóknir þar sem hann er afar gáfaður leikmaður og frábær í loftinu. Hann er sterkur líkamlega og góður í því að halda boltanum á meðan liðsfélagarnir færa sig upp völlinn.
27.06.2025 18:00
Lille nálægt samkomulagi um 38 ára Giroud
Merci, Olivier.
— LAFC (@LAFC) June 27, 2025
???? LAFC and Olivier Giroud have reached a mutual decision to part ways.
Giroud's final match with LAFC will be this Sunday, June 29, when the Black & Gold take on Vancouver at @BMOStadium at 6:30 pm PT.
Athugasemdir