27.07.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Harpa Ásgeirsdóttir lánuð úr KR í Aftureldingu (Staðfest)

Harpa Ásgeirsdóttir í leik með Völsungi gegn FH. Hún mætir FH í kvöld, í þetta sinn í búningi Aftureldingar.

Mynd: Hafþór Hreiðarsson

KR hefur lánað Hörpu Ásgeirsdóttur til Aftureldingar út tímabilið en hún er þegar komin með leikheimild og má spila gegn FH í Pepsi-deildinni í kvöld.
Harpa Ásgeirsdóttir kom til KR frá Völsungi í vetur en hún hafði verið fyrirliði með Völsungi í fyrrasumar.
Hún gerði tveggja ára samning við KR þegar hún kom þangað Hún hafði skorað 26 mörk í 62 leikjum með Völsungi í öllum keppnum en hafði leikið með Þór/KA/KS í efstu deild árið 2003 þar sem hún skoraði eitt mark í 6 leikjum.
Með KR fékk hún fá tækifæri og var aðeins búin að taka þátt í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni í sumar, þar sem hún spilaði í heildina 26 mínútur.