Fotbolti.net
27.07.10 - 17:35
Hafliði Breiðfjörð

Margrét Magnúsdóttir í Grindavík (Staðfest)

Margrét Magnúsdóttir í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kvennaboltinn
Margrét Magnúsdóttir sem var á láni hjá Fylki frá Val fyrstu mánuði tímabilsins hefur nú verið lánuð til Grindavíkur.
Margrét sem verður 21 árs gömul í sumar hóf knattspyrnuiðkun hjá Fylki en gekk til liðs við val í nóvember árið 2003.

Hún fór þaðan til Fjölnis í 20 daga sumarið 2007 og lék þar þrjá leiki og skoraði tvö mörk.

Með Val hefur hún aðeins leikið einn leik sem var í 8-0 sigri á ÍR á síðasta ári er hún lék í 23 mínútur.

Hún er bakvörður eða kantmaður sem lék þrjá leiki í deild og bikar með Fylki í sumar.

Hún er þegar komin með leikheimild með Grindavík og má því leika með liðinu gegn KR í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.