Fotbolti.net
27.08.09 - 16:04
Magnús Már Einarsson

Kagisho Dikgacoi til Fulham (Staðfest)

Kagisho Dikgacoi til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur keypt Suður-afríska miðjumanninn Kagisho Digacoi fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 24 ára gamli leikmaður er búinn að gera tveggja ára samning við Fulham en hann heillaði forráðamenn félagsins þegar að hann var þar á reynslu.

,,Ég hef fengið frábært tækifæri til að vera hluti af frábæru liði sem spilar í einni bestu deild í heimi,\" sagði Dikgacoi.

,,Þetta er sérstakt fyrir mig og ég ætla að grípa þetta tækifæri með báðum höndum.\"

Dikgacoi er kominn með atvinnuleyfi á Englandi og getur því þegar byrjað að leika með Fulham.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.