27.10.11 - 15:18
Magnús Már Einarsson
Bjarki Baldvinsson í KA (Staðfest)

Bjarki Baldvinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Bjarki Baldvinsson, leikmaður Völsungs, hefur gengið til liðs við KA í fyrstu deildinni. Bjarki skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Bjarki er kant eða miðjumaður en hann hefur skorað 21 mark í 97 leikjum með Völsungi á meistaraflokksferli sínum.
,,Ég er mjög ánægður með þennan samning. Ég hef spilað tæplega 100 leik með mínu uppeldisfélagi, en núna fannst mér tímabært að taka næsta skref og fara í sterkari deild,\" sagði hinn 21 árs gamli Bjarki á heimasíðu KA.
Samningur Bjarka við Völsung rennur út um áramót og mörg félög hafa sýnt honum áhuga að undanförnu. Á endanum ákvað Bjarki að ganga í raðir KA.
,,Ástæðan er einfaldlega sú að mér líst bara mjög vel á félagið og Gulla þjálfara og þekki ágætlega til nokkurra leikmanna í liðinu. Til dæmis erum við Hallgrímur Mar jafnaldrar og fylgdumst því að lengi í Völsungi. Mér líst bara mjög vel á að taka slaginn með KA.\"
Gunnlaugur Jónsson, þjálfari KA, er ánægður með að hafa náð að klófesta Bjarka en hann er annar leikmaðurinn sem félagið fær í haust á eftir Gunnari Val Gunnarssyni sem kom frá Fjölni.
,,Bjarka tók ég fyrst eftir í æfingaleik þegar ég stjórnaði Val veturinn 2010 gegn Völsungi og mánuði síðar þá vorum við Valsmenn mættir í Bogann. Á undan okkar leik voru Völsungar að spila og þar átti Bjarki stórleik og voru nokkrir leikmenn Vals sem komu til mín meðan á leik stóð og hreinlega sögðu mér að ná þessum strák. Það gekk ekki eftir en upp frá því hef ég fylgst vel með Bjarka og ég er hrikalega ánægður að hafa nælt í piltinn.\"
,,Þetta er leikmaður sem er ekki hár í loftinu en óhemju duglegur og útsjónarsamur með mjög góðan leikskilning. Það er rétt hjá honum að taka skrefið í 1. deildina og sem betur fer valdi hann að ganga til liðs við KA,\" sagði Gunnlaugur.

Heimild: Heimasíða KA