Fotbolti.net
28.01.12 - 17:07
Alexander Freyr Tamimi

Man Utd selur Mame Biram Diouf til Hannover (Staðfest)

Diouf var mest megnis á bekknum hjá Man Utd - ef hann komst í hóp.

Diouf var mest megnis á bekknum hjá Man Utd - ef hann komst í hóp.

Canon

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Mame Biram Diouf frá Manchester United.
Diouf þótti með undarlegri kaupum Sir Alex Ferguson í gegnum tíðina þegar hann fékk leikmanninn frá Noregi, en hann hefur mest megnis spilað með varaliðinu og var á láni hjá Blackburn í fyrra.

Diouf hefur nú skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Hannover og mun hefja æfingar með liðinu næstkomandi mánudag.

,,Ég er ánægður með að við höfum getað aukið möguleika okkar fram á við með því að fá Mame Diouf,” sagði Mirko Slomka þjálfari Hannover.

,,Við verðum að sjá til þess að hann aðlagist sem fyrst.”

Diouf kostaði United tæpar fjórar milljónir punda á sínum tíma en Hannover ku hafa borgað minna en helminginn af því verði samkvæmt þýska blaðinu Bild.

Heimild: Sports Illustrated

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.