Fimm stór félög að eltast við Semenyo - Man Utd í viðræðum um nítján ára miðjumann - Arsenal hefur áhuga á leikmanni AC Milan
banner
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
föstudagur 12. september
Besta-deild kvenna
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
Celje - Shelbourne - 20:00
Mainz - Samsunspor - 20:00
Lausanne - Fiorentina - 20:00
Shakhtar D - Rijeka - 20:00
Olomouc - Lech - 20:00
Slovan - Hacken - 20:00
Vallecano - Drita FC - 20:00
Crystal Palace - KuPS - 20:00
Strasbourg - Breiðablik - 20:00
Legia - Lincoln - 20:00
Zrinjski - Rapid - 20:00
Sparta Prag - Aberdeen - 20:00
AEK Larnaca - Shkendija - 20:00
AEK - Universitatea Craiova - 20:00
Omonia - Rakow - 20:00
AZ - Jagiellonia - 20:00
Dynamo K. - Noah - 20:00
Shamrock - Hamrun Spartans - 20:00
Vináttuleikur
Spain U-19 3 - 0 Australia U-20
Túnis - Botswana - 14:00
Costa Rica U-20 - Canada U-20 - 21:00
Bikarkeppni
Burgos - Getafe - 18:00
Ourense CF - Athletic - 18:00
Murcia - Betis - 20:00
fös 28.apr 2023 19:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara í 2. deild: 9. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Víkingi Ólafsvík er spáð níunda sæti deildarinnar í ár.

Brynjar Kristmundsson, þjálfari Víkinga.
Brynjar Kristmundsson, þjálfari Víkinga.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Emmanuel Eli Keke.
Emmanuel Eli Keke.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Markvörðurinn Aitor González kom frá Spáni.
Markvörðurinn Aitor González kom frá Spáni.
Mynd/Aðsend
Hversu mikið spilar Þorsteinn Már í sumar?
Hversu mikið spilar Þorsteinn Már í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gera Ólsarar í sumar?
Hvað gera Ólsarar í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9. Víkingur Ó., 46 stig
10. KV, 42 stig
11. KF, 32 stig
12. KFG, 19 stig

Lokastaða í fyrra: Ólsarar sigldu lygnan sjó á síðustu leiktíð og enduðu að lokum í sjöunda sæti 2. deildar. Liðið er núna á leið inn í sitt annað tímabil í röð í þessari deild en það verður fróðlegt að sjá hvernig fer hjá þeim.

Þjálfarinn: Brynjar Kristmundsson tók við stjórn Ólsara eftir síðasta tímabil af Guðjóni Þórðarsyni. Brynjar er fyrrum leikmaður liðsins og hefur verið aðstoðarþjálfari síðustu þrjú ár. Brynjar er uppalinn á Snæfellsnesi og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Víkingi árið 2008. Hann hefur fengið góðan skóla hjá Gauja Þórðar og tekst nú á við spennandi verkefni.

Álit Ástríðunnar
Hlaðvarpsþátturinn Ástríðan er leiðandi í umfjöllun um 2. deild. Þáttarstjórnendur gefa sitt álit á liðunum fyrir mót.

Um Víking Ólafsvík segja þeir: Ólsarar byrjuðu illa í fyrra en náðu góðu skriði í lokin. Þeir verða að byggja ofan á því. Það er rík hefð í Ólafsvík og þeir hafa kynnst ótrulegri velgengni síðustu 20 ár. Staðan er aðeins önnur í dag en þeir hafa gæði innanborðs til þess að gera ýmislegt. 5-9. sæti er þó líklegra en einhver alvöru atlaga að toppsætunum tveimur.

Styrkleikar: Bestu leikmenn liðsins eru mjög góðir. Luke Williams er einn besti leikmaður deildarinnar og mun mikið mæða á honum. Ef Þorsteinn Már Ragnarsson nær að spila lungann af mótinu mun hann reynast Ólsurum mikilvægur. Þeir enduðu mótið í fyrra vel og ættu að ná að byggja á því og framkvæma enn betur hugmyndir hins unga og efnilega þjálfara Brynjars Kristmundssonar.

Veikleikar: Lökustu leikmenn liðsins eru ekki nógu góðir. Breiddin er takmörkuð og ef þeir lenda í meiðslum lykilmanna mun það reynast mikil blóðtaka. Varnarlínan er einnig spurningarmerki. Eftir því sem við best vitum hefur veturinn ekkert verið spes æfingalega hjá Ólsurum og þeir gætu því verið lengi í gang.

Lykilmenn: Luke Williams, Björn Axel Guðjónsson, Emmanuel Eli Keke.

Gaman að fylgjast með: Guðbjörn Smári Birgisson og Ingvar Freyr Þorsteinsson. Skoruðu samtals 16 mörk í 4. deild í fyrra en hvernig gengur þeim að taka skrefið upp á við?

Komnir
Abdelhadi Khalok El Bouzarrari frá Spáni
Aitor González González frá Spáni
Alfreð Már Hjaltalín frá Kormáki/Hvöt
Daði Kárason frá KH
Guðbjörn Smári Birgisson frá Hvíta riddaranum
Ingvar Freyr Þorsteinsson frá Reyni H
Kristófer Máni Atlason frá Reyni H
Þorsteinn Már Ragnarsson frá KR

Farnir
Andri Þór Sólbergsson í Fram (var á láni)
Baldur Olsen í Reyni H
Bjartur Bjarmi Barkarson í Aftureldingu
Björn Óli Snorrason í Reyni H (á láni)
Davíð Svanur Hafþórsson í Reyni H (á láni)
Kristján Freyr Tómasson í Reyni H (á láni)
Vitor Vieira Thomas í KF

Þjálfarinn segir - Brynjar Kristmundsson
„Markmiðið okkar er klárlega að gera betur en níunda sætið og við teljum okkur vera með leikmannahóp sem getur gert góða hluti í þessari deild. Spár eru alltaf skemmtilegar en væntingarnar okkar klárlega stærri og meiri."

Fyrstu þrír leikir Víkinga:
6. maí, Víkingur Ó. - Dalvík/Reynir (Ólafsvíkurvöllur)
13. maí, Höttur/Huginn - Víkingur Ó. (Vilhjálmsvöllur)
20. maí, Víkingur Ó. - Völsungur (Ólafsvíkurvöllur)
Athugasemdir