28.06.10 - 12:00
Hörður Snævar Jónsson
Helgi Valur Daníelsson til AIK (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Valur Daníelsson hefur samið við sænsku meistarana í AIK, þetta kemur fram á mbl.is.
Helgi hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs langan samning við félaigð.
Hann var á mála hjá Hansa Rostock á síðustu leiktíð en gengi liðsins var hræðilegt og féll það niður í þýsku 3. deildina.
Helgi kann nú vel við sig í Svíþjóð en hann lék með Öster og Elfsborg áður en hann gekk í raðir þýska liðsins.
AIK er með stærri félögum í Svíþjóð og tekur þátt í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í ár.

Heimild: Mbl