28.06.10 - 21:06
Magnús Már Einarsson
Angel di Maria til Real Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur keypt kantmanninn Angel di Maria frá Benfica en talið er að kaupverðið hljóði upp á 25 milljónir evra.
Di Maria, sem er 22 ára, hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína hjá Benfica og mörg stór félög í Evrópu hafa sýnt honum áhuga.
Real Madrid hefur núna gengið frá kaupum á leikmanninum sem mun skrifa undir sex ára samning við félagið.
Di Maria mun skrifa undir samninginn eftir að hann hefur lokið keppni með argentínska landsliðinu á HM.
Þessi knái leikmaður er fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Real Madrid síðan Jose Mourinho tók við liðinu á dögunum en búist er við að fleiri leikmenn eigi eftir að koma til Madridinga í sumar.

Heimild: Sky