Sænska félagið Djurgården virkjaði riftunarákvæði í samningi Mikaels Anderson í gær til að kaupa hann frá danska félaginu AGF.
Djurgården borgar tvær milljónir evra til að kaupa Mikael en það er metfé í sögu félagsins.
Tobias Gulliksen er næstdýrastur í sögu félagsins eftir að Djurgården keypti hann frá Bodö/Glimt fyrir tveimur árum en sá þriðji dýrasti í sögunni er enginn annar en Kim Källström sem gekk til liðs við félagið þegar hann var 19 ára gamall, áður en hann var seldur áfram til Rennes tveimur árum síðar.
Mikael verður 27 ára um mánaðamótin og hefur verið lykilmaður í liði AGF síðustu fjögur ár. Þar áður lék hann fyrir Midtjylland.
Hann á 33 landsleiki að baki fyrir Ísland og á að sinna lykilhlutverki á miðjunni hjá Djurgården.
Mikael er afar fjölhæfur leikmaður sem getur einnig spilað á báðum köntum, sem sóknartengiliður og sem framherji.
27.06.2025 10:08
Mikael skrifaði undir við Djurgarden til 2029 (Staðfest)
Athugasemdir