Færeyska stórveldið NSÍ Runavík hefur staðfest félagaskipti danska miðvarðarins Daniel Obbekjær til félagsins.
Obbekjær er fæddur 2002 og uppalinn hjá OB í Danmörku en hann gekk til liðs við Breiðablik í fyrra. Hann stóð sig vel í þeim leikjum sem hann spilaði með Blikum á síðasta tímabili þegar liðið varð Íslandsmeistari.
Hann skoraði 3 mörk í 9 leikjum í Bestu deildinni í fyrra og hefur spilað 4 deildarleiki með Blikum á fyrri hluta tímabils, auk tveggja leikja í Mjólkurbikarnum.
Hjá NSÍ mun Obbekjær spila með Klæmint Olsen, sem lék með Breiðabliki sumarið 2023.
Obbekjær þótti gríðarlega efnilegur og spilaði 20 leiki fyrir yngri landslið Dana á árunum 2018 til 2020.
Obbekjær lék með 07 Vestur í færeyska boltanum áður en hann flutti til Kópavogs og þekkir því vel til í færeysku deildinni.
Hann gerir eins og hálfs árs samning við NSÍ, sem gildir út 2026.
27.06.2025 11:10
Daniel Obbekjær yfirgefur Breiðablik
Athugasemdir