Fotbolti.net
28.07.10 - 08:28
Magnús Már Einarsson

Ólafur Júlíusson í HK (Staðfest)

Ólafur Júlíusson í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Ólafur V. Júlíusson hefur gengið að nýju til liðs við HK eftir rúmlega árs fjarveru.
Ólafur hefur leikið með Ými að undanförnu og spilaði með Víkingi í Ólafsvík fyrri hluta síðasta sumars.

Ólafur er 31 árs gamall og er markahæsti leikmaðurinn í sögu meistaraflokks HK með 59 mörk, þar af 42 í deildaleikjum, og er jafnframt sá fjórði leikjahæsti með 161 leik.

Hann fer beint inn í leikmannahóp HK fyrir leikinn gegn Gróttu í fyrstu deildinni annað kvöld og sömu sögu er að segja af Brynjari Víðissyni sem er byrjaður aftur eftir tveggja mánaða pásu.

HK verður hins vegar án Atla Valssonar sem verður frá næstu sex vikurnar og Inga Þorsteinssonar sem er líka meiddur. Þá taka Hafsteinn Briem og Leifur Andri Leifsson einnig út leikbann hjá HK í kvöld.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.