28.07.10 - 10:48
Magnús Már Einarsson
Raul til Schalke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Spænski framherjinn Raul hefur gengið í raðir þýska félagsins Schalke eftir 18 ára dvöl hjá Real Madrid.
Þessi 33 ára gamli leikmaður yfirgaf Real Madrid í fyrradag og sagðist vera að skoða tilboð frá Þýskalandi og Englandi.
Í morgun skrifaði hann síðan undir tveggja ára samning við Schalke sem endaði í öðru sæti í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili.

,,Við erum að fá stórkostlegan fótboltamann og heimsklassa markaskorara,\" sagði Felix Magath þjálfari Schalke.
Raul lék 741 leik á ferli sínum hjá Real Madrid og skoraði 323 mörk en hann hefur einnig skorað 44 mörk í 102 landsleikjum með Spánverjum.

Heimild: BBC