28.08.09 - 07:08
Magnús Már Einarsson
Pascal Chimbonda til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur gengið frá kaupunum á Pascal Chimbonda en hann kemur til félagsins frá Tottenham.
Þessi þrítugi Frakki stóðst læknisskoðun í gær en talið er að hann kosti Blackburn um það bil tvær milljónir punda.
Chimbonda getur leikið allar stöður í vörninni þó að hann sé oftast hægri bakvörður.
Hjá Blackburn er líklegt að hann fari í aðra stöðu þar sem að Michel Salgado og Lars Jacobsen eru báðir hægri bakverðir.
Ekki er ólíklegt að Chimbonda verði hent í vinstri bakvörðinn þar sem að Stephen Warnock fór frá Blackburn til Aston Villa í gær.

Heimild: BBC