28.08.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Robert Huth til Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke hefur keypt þýska varnarmanninn Robert Huth frá Middlesbrough á fimm milljónir punda en verðið gæti hækkað upp í sex milljónir síðar meir.
,,Það var ekki spurning um koma hingað eftir að ég vissi að þeir vildu fá mig. Ég er ánægður með að fá aftur tækifæri til að spila í úrvalsdeildinni,\" sagði Huth.
Tuncay, leikmaður Middlesbrough, mun væntanlega einnig ganga í raðir Stoke í dag.
Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð en hinn tyrkneski Tuncay á eftir að semja um kaup og kjör.
Stoke vonast til að báðir leikmennirnir geti leikið með liðinu gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Heimild: BBC