28.08.09 - 10:39
Gunnar Gunnarsson
Alessandro Diamanti til West Ham United (Staðfest)
Gianfranco Zola heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn

Alessandro Diamanti nýr liðsmaður West Ham.

Mynd: Getty Images

Gianfranco Zola þjálfari West Ham hefur náð að klófesta Alessandro Diamanti sóknarmann frá Livorno en kaupverðið er talið vera í kringum 6 milljónir punda.
Zola hafði áður náð að landa Luis Jimenez frá Inter Milan á lánssamningi og má því með sanni segja að Ítalinn sé heldur betur að nýta sér samböndin í heimalandi sínu.
Hinn 26 ára gamli Alessandro Diamanti skoraði 18 mörk í 37 deildar- og bikarleikjum fyrir Livorno á síðasta keppnistímabili og kemur vafalítið til með að styrkja sóknarleik West Ham.
Diamanti skrifaði undir fimm ára samning hjá West Ham og varð jafnframt fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hamrana í sumar en áður höfðu Herita Ilunga, Radoslav Kovac, Fabio Daprela og Frank Nouble gert langtímasamninga við félagið.
,,Ég er mjög ánægður að vera genginn til liðs við West Ham United og fengið tækifæri til að spila undir stjórn Gianfranco Zola. Þetta er stórt félag og ég vil gera allt sem ég get til að gleðja stuðningsmennina,\" sagði Diamanti á opinberri heimasíðu West Ham.
Hann bætti við: ,,Ég valdi West Ham vegna þess að þetta félag sem er þekkt fyrir að spila flotta knattspyrnu og einnig vegna þess að stuðningsmenn liðsins eru mjög ástríðufullir en þannig er ég líka,\" sagði Alessandro Diamanti nýr leikmaður West Ham United í ensku úrvalsdeildinni.
Ekki er ólíklegt að þessi leikmannakaup Gianfranco Zola séu þar með þau síðustu hjá West Ham í sumar. Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsmaður okkar Íslendinga hefur verið töluvert orðaður við félagið að undanförnu en nú bendir flest til að hann haldi kyrru fyrir hjá Barcelona.

Heimild: Goal.com