Fotbolti.net
28.09.11 - 19:00
Magnús Már Einarsson

Pascal Chimbonda til Doncaster (Staðfest)

Pascal Chimbonda til Doncaster (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Doncaster Rovers í ensku Championship deildinni hefur samið við franska bakvörðinn Pascal Chimbonda.

Chimbonda yfirgaf QPR í apríl síðastliðnum en hann hefur nú gert samning við Doncaster sem gildir þar til í janúar.
Hinn 32 ára gamli Chimbonda átti martraðartímabil með Blackburn í fyrra áður en hann gekk í raðir QPR þar sem hann komst ekki í liðið.

Chimbonda hefur einnig leikið með Wigan, Tottenham og Sunderland á Englandi.

Doncaster hefur einnig verið í viðræðum við El-Hadji Diouf en ekkert verður af því að hann semji við félagið þar sem hann ku vera á leið til Rússlands.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.