28.10.10 - 10:14
Magnús Már Einarsson
Paul Ince tekinn við Notts County (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Paul Ince hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá Notts County en hann hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við félagið.
Ince hætti hjá MK Dons í maí síðastliðnum en hann hefur einnig stýrt Blackburn og Macclesfield á ferli sínum.

Mikið hefur gengið á hjá Notts County undanfarna mánuði en Ince er sjötti knattspyrnustjóri félagsins á einu ári.
Ian McParland, Hans Backe, Dave Kevan og Steve Cotterill hafa allir stýrt liðinu undanfarið ár sem og Craig Short sem var rekinn um helgina.
Notts County leikur í þriðju efstu deild á Englandi en liðið er í sextánda sæti eftir þrettán umferðir.

Heimild: BBC