Fotbolti.net
28.10.10 - 11:41
Hafliði Breiðfjörð

Arnar Már Björgvinsson í Breiðablik (Staðfest)

Arnar Már í leik með Stjörnunni.

Arnar Már í leik með Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Framherjinn Arnar Már Björgvinsson er genginn til liðs við Íslandsmeistarara Breiðabliks frá Stjörnunni og hefur gert þriggja ára samning við félagið.
Arnar Már vakti mikla athygli á sínu fyrsta tímabili með meistaraflokki Stjörnunnar á síðasta ári þegar hann var meðal markahæstu manna þrátt fyrir að vera sjaldan í byrjunarliði.

Þá skoraði hann níu mörk í 15 leikjum með Stjörnunni í deildinni og lék auk þess einn bikarleik. Hann spilaði minna í sumar en skoraði þó þrjú mörk og kom við sögu í 14 leikjum í deild og bikar.

,,Eftir sex góð ár í Garðabænum þá hef ég ákveðið að róa á önnur mið, en ákvörðuninn á sér nokkuð langan aðdraganda,\" sagði Arnar Már við Fótbolta.net í dag.

,,Ég óska Stjörnunni allt hið besta á komandi leiktíð og þakka leikmönnum, þjálfurum, stjórninni og ekki síst stuðningsmönnum fyrir frábær ár í Garðabænum,\" bætti hann við.

Arnar Már er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Íslandsmeistara Breiðabliks frá því tímabilinu lauk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.