28.10.10 - 14:10
Magnús Már Einarsson
Albert Ferrer ráðinn þjálfari Vitesse (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Albert Ferrer hefur verið ráðinn þjálfari hjá Vitesse Arnhem í hollensku úrvasdeildinni.
Þessi fertugi Spánverji tekur við af Theo Bos sem var rekinn í síðustu viku.
Ferrer lék á sínum tíma sem bakvörður með bæði Barcelona og Chelsea og vann nokkra titla áður en hann lagði skóna á hilluna árið 2003.
Síðan þá hefur Ferrer starfað sem sérfræðingur hjá spænskri sjónvarpsstöð.
Nú fær hann krefjandi verkefni sem þjálfari Vitesse en liðið er í fallsæti með átta stig eftir ellefu umferðir.
Stanley Menzo, Albert Capellas Herms og Hans van Arum verða aðstoðarmenn Ferrer og Raimond van der Gouw, fyrrum markvörður Manchester United, mun halda áfram sem markmannsþjálfari hjá félaginu.

Heimild: Soccernet