28.10.10 - 14:20
Magnús Már Einarsson
Hannes Þór Halldórsson í KR (Staðfest)

Hannes í KR heimilinu í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við KR.
Hannes kemur til KR frá Fram þar sem hann hefur staðið á milli stanganna undanfarin fjögur ár.
Samningur Hannesar við Fram rennur út um áramótin og því var honum frjálst að semja við KR.
Hjá KR fær Hannes það hlutverk að fylla skarð Lars Ivar Moldskred sem fór frá Vesturbæjarliðinu á dögunum.
Hannes, sem er 26 ára gamall, hefur leikið alla leiki Fram í Pepsi-deildinni undanfarin fjögur ár. Áður lék hann með Stjörnunni, Aftureldingu og uppeldisfélagi sínu Leikni R.