Fotbolti.net
28.10.10 - 15:56
Hafliði Breiðfjörð

Björgvin Karl tekur við kvennaliði KR (Staðfest)

Björgvin Karl þjálfar kvennalið KR.

Björgvin Karl þjálfar kvennalið KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
KR staðfesti á vef sínum rétt í þessu að Björgvin Karl Gunnarsson hafi verið ráðinn þjálfari kvennaliðs félagsins.
Björgvin Karl var í þjálfarateymi KR á síðustu leiktíð og hefur stýrt liðinu tímabundið eftir að Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Kristrún Lilja Daðadóttir hættu með liðið.

Hann lék með Hetti í 2. deildinni á síðustu leiktíð og er því annar nýi þjálfarinn í Pepsi-deild kvenna sem kemur frá Hetti því Jón Páll Pálmason sem þjálfaði Hött í fyrra er tekinn við Fylki.

Auk þess að hafa leikið með Hetti hefur Björgvin Karl leikið með Fjarðabyggð, Hvöt, ÍA og Skallagrími auk körfuboltaliðs Hattar.

Hann þjálfaði áður kvennalið Hattar.

Lið KR endaði í 6. sæti Pepsi-deildar kvenna í summar og fékk aðeins 23 stig úr 18 leikjum sínum í deildinni.

Með ráðningu hans eru öll liðin í Pepsi-deild kvenna búin að ráða þjálfara og ljóst að aðeins einn þjálfari sem byrjaði síðasta mót verður áfram í deildinni. Það er Jóhannes Karl Sigursteinsson þjálfari Breiðabliks.

Þjálfarar í Pepsi-deild kvenna 2010:
Valur: Gunnar Borgþórsson*
Þór/KA: Viðar Sigurjónsson* (tók við á miðju tímabili)
Breiðablik: Jóhannes Karl Sigursteinsson
Stjarnan: Þorlákur Árnason*
Fylkir: Jón Páll Pálmason*
KR: Björgvin Karl Gunnarsson*
Grindavík: Jón Þór Brandsson*
Afturelding: John Andrews* (tók við á miðju tímabili)
ÍBV: Jón Óli Daníelsson (liðið kemur upp)
Þróttur: Theódór Sveinjónsson (liðið kemur upp)

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.