Fotbolti.net
28.10.11 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Bryan Hughes til Accrington Stanley (Staðfest)

Hughes í fyrsta leik sínum með ÍBV.

Hughes í fyrsta leik sínum með ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Bryan Hughes, sem lék með ÍBV í sumar, hefur gengið til liðs við Accrington Stanley í ensku D-deildinni.
Þessi reyndi miðjumaður lék á sínum tíma í ensku úrvalsdeildinni en hann gekk til liðs við ÍBV í maí síðastliðnum. Hann náði hins vegar aldrei að festa sig í sessi hja ÍBV og fór á endanum heim í júlí eftir að hafa einungis leikið tvo leiki í byrjunarliði.

Hughes hefur æft með Accrington undanfarnar vikur og hann mun núna reyna að hjálpa liðinu í botnbaráttu ensku D-deildarinnar.

,,Vinur minn Dean Windass var að fjalla um leik hja Accrington fyrir Sky og hann talaði við John Coleman (stjóra Accrington) og sagði honum að ég væri án félags. Hann bauð mér að koma og eftir það var þetta fljótt að gerast,\" sagði Hughes.

Hughes skoraði 34 mörk í 247 deildarleikjum með Birmingham í efstu og næstefstu deild frá 1997-2004.

Þessi 34 ára gamli leikmaður lék í kjölfarið með Charlton frá 2004-2007 og síðan með Hull City frá 2007-2010. Samtals hefur Hughes skorað 10 mörk í 128 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á ferli sínum.

Heimild: Accrington Stanley

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.