28.10.11 - 09:54
Hafliði Breiðfjörð
Róbert Örn Óskarsson í FH (Staðfest)

Róbert Örn Óskarsson í leik með ÍR í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

FH tilkynnti í morgun að markvörðurinn Róbert Örn Óskarsson sé genginn til liðs við félagið að nýju og hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Frá þessu var greint á vefnum FHingar.net en Róbert Örn kemur frá Víkingum þar sem hann staldraði stutt við í fyrra áður en hann var lánaður til 1. deildarliðs ÍR.
Róbert Örn sem er 24 ára gamall var áður hjá FH frá 2004-2009 og lék þá einn leik með meistaraflokki FH í Meistarakeppni KSÍ árið 2006. Hann hefur tekið miklum framförum síðan þá og átti frábært sumar með ÍR í 1. deildinni í sumar.
Tvö ár þar á undan var hann hjá BÍ/Bolungarvík og þótti standa sig mjög vel þar en hann hefur leikið 75 leiki í deild og bikar með KS/Leiftri, BÍ/Bolungarvík og ÍR.
Hann gekk til liðs við Víking frá BÍ/Bolungarvík á undirbúningstímabilinu í fyrra vegna meiðsla Magnúsar Þormar markmanns Víkings en var svo lánaður til ÍR.
Hann hefur leikið þrjá leiki fyrir U19 og U17 ára landslið Íslands.
Hjá FH er honum gefið það hlutverk að veita Gunnleifi Gunnleifssyni landsliðsmarkverði samkeppni og leysir þannig stöðu Gunnars Sigurðssonar sem hefur verið varamarkvörður liðsins undanfarin ár.

Heimild: FHingar.net