Fotbolti.net
28.10.11 - 23:29
Elvar Geir Magnússon

Jóhannes Karl spilar með ÍA næsta sumar (Staðfest)

Jóhannes Karl í búningi ÍA í meistaraleik Sigursteins Gíslasonar í sumar.

Jóhannes Karl í búningi ÍA í meistaraleik Sigursteins Gíslasonar í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Ljóst er að Jóhannes Karl Guðjónsson mun spila með ÍA í Pepsi-deildinni næsta sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu DV og var staðfest á karlakvöldi Skagamanna í kvöld.
„Sól slær silfri á voga sjáðu jökulinn loga. Allt er bjart fyrir okkur tveim því ég er að koma HEIM!“ skrifaði Jóhannes sjálfur á Facebook-síðu sína.

Þessar fréttir ættu ekki að koma neinum á óvart en Jóhannes sagði sjálfur í sumar að mjög líklegt væri að hann myndi spila í búningi ÍA á næsta tímabili. ÍA er uppeldisfélag hans og vann sér inn sæti í Pepsi-deildinni á ný á síðustu leiktíð.

Jóhannes fór ungur út í atvinnumennsku og hefur spilað með Genk, RKC Waalwijk, Real Betis, Aston Villa, Wolves, Leicester, AZ Alkmaar og Burnley.

Í fyrra gekk hann í raðir Huddersfield Town en mun spila aftur heima á Íslandi á næsta tímabili. Hann á 34 A-landsleiki að baki. Ljóst er að þessi öflugi miðjumaður er mikill styrkur fyrir ÍA.

Heimild: DV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.