Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 29. mars 2024 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Dagbjartur Búi til Dalvíkur/Reynis (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: KA
Dagbjartur Búi Davíðsson er búinn að skrifa undir nýjan samning við KA sem gildir næstu þrjú árin, en hann mun leika á láni hjá Dalvík/Reyni í sumar.

Dagbjartur er gríðarlega spennandi kantmaður sem er aðeins 17 ára gamall. Hann verður 18 ára í lok maí og lék á láni með KF í 2. deildinni í fyrra, þar sem hann skoraði fjögur mörk.

Dalvík/Reynir vann 2. deildina í fyrra og leikur því í Lengjudeildinni komandi sumar. Það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með Dagbjarti taka stökkið upp um deild, rétt eins og Dalvíkingum í heild.

Akureyingar binda miklar vonir við Dagbjart og búast við því að hann verði mikilvægur leikmaður í liði KA í framtíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner