Pablo Longoria er búinn að samþykkja að taka við sem yfirmaður íþróttamála hjá argentínska stórveldinu River Plate.
Longoria er 39 ára gamall og hefur komið víða við á ferli sínum í fótboltaheiminum en hann starfaði síðast sem forseti hjá Marseille í Frakklandi.
Þar áður starfaði hann meðal annars sem njósnari fyrir Juventus og Newcastle og yfirmaður fótboltamála hjá Valencia.
Fabrizio Romano greinir frá þessu og segir að Longoria verði formlega kynntur á næstu dögum.
23.03.2026 22:30
Forseti Marseille samdi um starfslok (Staðfest)




