Fotbolti.net
29.05.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Dean Marney til Burnley (Staðfest)

Dean Marney til Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hefur keypt miðjumanninn Dean Marney frá Hull City en talið er að kaupverðið sé í kringum 500 þúsund pund.
Marney er uppalinn hjá Tottenham en þessi 26 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Burnley.

,,Miðjan er svæði sem við vildum styrkja og þrátt fyrir ungan aldur hefur hann mikla reynslu,\" sagði Brian Laws stjóri Burnley.

,,Dean hefur spilað í tvö ár í ensku úrvalsdeildinni svo hann veit hvað þarf til.\"

Burnley og Hull féllu bæði úr ensku úrvalsdeildinni í vor og munu því leika í Championship deildinni á næsta tímabili.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.