Fotbolti.net
29.06.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Fyrrum leikmaður Víkings til Coventry (Staðfest)

Fyrrum leikmaður Víkings til Coventry (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson og félagar í Coventry City hafa fengið liðsstyrk en varnarmaðurinn Richard Keogh er kominn til félagsins frá Carlisle United.
Þessi 23 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Coventry.

Keogh lék með Víkingi Reykjavík í efstu deild á Íslandi árið 2004 en þá var hann í láni frá Stoke.

Síðan þá hefur Keogh komið víða við en áður en hann fór til Carlisle lék hann með Bristol City, Wycombe Wanderers, Huddersfield Town og Chesterfield.

Keogh er fjórði leikmaðurinn sem Coventry fær síðan Aidy Boothroyd tók við liðinu af Chris Coleman á dögunum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.