29.06.10 - 09:50
Magnús Már Einarsson
Mauro Boselli til Wigan (Staðfest)

Martinez er búinn að krækja í framherja.

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hefur keypt framherjann Mauro Boselli frá Estudiantes í Argentínu.
Talið er að Wigan borgi í kringum sex milljónir punda fyrir leikmanninn en helmingurinn af verðinu fer til Boca Juniors sem átti 50% hlut í leikmanninum.
Boselli, sem er 25 ára, skrifaði sjálfur undir fjögurra ára samning við Wigan.
,,Mauro er markaskorari sem lifir fyrir það að koma boltanum í netið, hann er leikmaður sem við höfum fylgst með í langan tíma,\" sagði Roberto Martinez stjóri Wigan.

Heimild: Sky