Fotbolti.net
29.06.10 - 16:26
Magnús Már Einarsson

Nigel Pearson tekur við Hull (Staðfest)

Nigel Pearson tekur við Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nigel Pearson hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri hjá Hull City en hann kemur til félagsins frá Leicester.
Phil Brown var rekinn frá Hull í mars síðastliðnum og í kjölfarið tók Iain Dowie við liðinu.

Dowie tókst ekki að bjarga Hull frá falli og því mun liðið leika í Championship deildinni á næsta tímabili.

Pearson hefur verið við stjórnvölinn hjá Leicester síðan sumarið 2008 en hann kom til félagsins frá Southampton.

Craig Shakespeare og Steve Walsh verða aðstoðarmenn Pearson sem skrifaði undir þriggja ára samning við Hull.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.