Á leið til Parísar þrátt fyrir óánægju stuðningsmanna

Lucas hér með íslenska landsliðsfyrirliðanum, Glódísi Perlu Viggósdóttur.

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Lucas Hernandez er að yfirgefa Bayern München og er að ganga í raðir Paris Saint-Germain.
Ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano greinir svo frá því í dag að samkomulag sé í höfn. PSG er að kaupa varnarmanninn fyrir um 50 milljónir evra.
Eins og áður hefur komið fram þá eru harðkjarna stuðningsmenn PSG, ultras, ekki spenntir fyrir komu Lucas.
Lucas er tengdur Marseille og það eru erkióvinir PSG. Hann er fæddur í Marseille og er sonur fyrrum leikmanns félagsins.
Einn af aðalmönnunum í harðkjarna stuðningsmannasveit PSG sagði á Instagram að Lucas „væri ekki velkominn" og „hann yrði látinn vita" að svo væri ef hann kæmi.
Lucas vill nýja áskorun á sínum ferli og hann er á leið til PSG þrátt fyrir óánægju stuðningsmanna.

Lucas Hernández to PSG is a done deal. €48-50m fee including add-ons. The Frenchman is already in Paris [@FabrizioRomano] pic.twitter.com/PsKsJ009CZ
— Bayern & Germany (@iMiaSanMia) June 29, 2023