Fotbolti.net
29.07.10 - 13:16
Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnukona Suður Afríku 2008 til ÍBV (Staðfest)

Knattspyrnukona Suður Afríku 2008 til ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Noko Matlou knattspyrnukona ársins í Afríku árið 2008 er gengin til liðs við ÍBV og hefur þegar fengið félagaskipti með sínu nýja félagi.
Matlou var nokkuð í umræðunni á síðasta ári þegar allt benti til þess að hún væri að ganga til liðs við KR.

Þá höfðu staðið yfir deilur milli félags hennar í Suður Afríku, Brazilian Ladies FC, og Mike Fola umboðsmanns hennar því félagið sagði reynt að selja hana á bakvið sig.

Rætt var við Rúnar Kristinsson yfirmann knattspyrnumála hjá KR í Suður Afrískum fjölmiðlum á þeim tíma.

Hann greindi þar frá því að Gareth O\'Sullivan sem þá var nýhættur þjálfun liðsins hafi haft þessi mál á sinni könnu og KR væri að reyna að ná í suður afríska félagið til að átta sig á stöðu leikmannsins.

Ekkert varð úr félagaskiptum á þeim tíma en nú er ljóst að Matlou kemur til Íslands því hún er gengin til liðs við ÍBV.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.