29.07.10 - 21:58
Magnús Már Einarsson
Mark Hughes tekinn við Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mark Hughes hefur tekið við Fulham en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í kvöld. Hughes tekur við Fulham af Roy Hodgson sem tók við liði Liverpool á dögunum.
Hughes, sem er 46 ára, var rekinn frá Manchester City í desember síðastliðnum en hann hefur verið í fríi frá fótbolta síðan þá.
,,Ég er að taka við liðinu eftir tvö sigursælustu árin í sögu félagsins,\" sagði Hughes.
,,Ég er vongóður um að ef við bætum aðeins við hópinn og leggjum hart að okkur þá getum við komið þessu félagi áfram í rétta átt.\"
Hughes verður formlega kynntur til sögunnar sem stjóri Fulham í næstu viku en hann stýrir liðinu síðan í sínum fyrsta leik gegn Werder Bremen fjórum dögum síðar.

Heimild: BBC