Fotbolti.net
29.09.11 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Stefán Gíslason aftur til Lilleström (Staðfest)

Stefán Gíslason aftur til Lilleström (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Stefán Gíslason hefur gert nýjan samning við Lilleström út þetta ár en hann verður með liðinu í síðustu sex umferðum norsku úrvalsdeildarinnar.

Stefán kom til Lilleström frá Bröndby snemma á þessu ári og gerði þá samning til 1. ágúst.
Síðan sá samningur rann út hefur Stefán verið í leit að nýju félagi en hann reyndi meðal annars fyrir sér í Þýskalandi og í Bandaríkjunum.

Á dögunum æfði hann síðan með Breiðabliki en nú er ljóst að Stefán verður út tímabilið hjá Lilleström.

,,Stefán er kominn til baka. Hann hefur framlengt samning sinn við LSK og mun spila með okkur út árið,\" sagði Torgeir Bjarmann yfirmaður íþróttamála hjá Lilleström.

,,Gamli samningurinn er kominn aftur í gildi. Hann hefur ekki fundið sér nýtt félag og því kom þessi möguleiki upp.\"

Stefán kom til Noregs í dag en hann gæti leikið með Lilleström að nýju á morgun þegar liðið mætir Rosenborg.

Heimild: Heimasíða Lilleström

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.